Micah 1

1Orð Drottins, sem kom til Míka frá Móreset á dögum Jótams, Akasar og Hiskía, Júdakonunga, það er honum vitraðist um Samaríu og Jerúsalem. 2Heyrið, allir lýðir! Hlusta þú, jörð, og allt sem á þér er! Og Drottinn Guð veri vottur gegn yður, Drottinn frá sínu heilaga musteri. 3Sjá, Drottinn mun út fara frá bústað sínum, mun ofan stíga og ganga eftir hæðum jarðarinnar. 4Fjöllin munu bráðna undan honum og dalirnir klofna sem vax fyrir eldi, sem vatn, er steypist ofan bratta hlíð. 5Og allt þetta sakir misgjörðar Jakobs og sakir syndar Ísraels húss. Hver er þá misgjörð Jakobs? Er það ekki Samaría? Og hver er synd Júda? Er það ekki Jerúsalem? 6Ég gjöri því Samaríu að grjótrúst á víðavangi, að gróðurekru undir víngarða, og velti steinum hennar ofan í dalinn og læt sjást í beran grundvöllinn. 7Öll skurðgoð hennar skulu sundur brotin verða og allar helgigjafir hennar í eldi brenndar, og öll guðalíkneski hennar vil ég framselja til eyðingar, því að hún hefir dregið þær saman úr hórgjöldum, og að hórgjöldum skulu þær aftur verða. 8Vegna þessa vil ég harma og kveina, ganga berfættur og skikkjulaus, telja mér harmatölur eins og sjakalarnir og halda sorgarkvein eins og strútsfuglarnir. 9Því að ólæknandi eru sár hennar. Já, það kemur allt til Júda, nær allt að hliðum þjóðar minnar, allt að Jerúsalem. 10Segið ekki frá því í Gat, grátið ekki hátt! Veltið yður í duftinu í Betleafra! 11Gangið fram smánarlega naktir, þér íbúar Safír! Íbúarnir í Saanan voga sér ekki út, harmakveinið í Bet Haesel aftrar yður frá að staðnæmast þar. 12Því að íbúar Marót eru kvíðandi um sinn hag, já, ógæfa stígur niður frá Drottni allt að hliðum Jerúsalem. 13Beitið gæðingum fyrir vagnana, þér íbúar Lakís! Í þeirri borg kom fyrst upp synd dótturinnar Síon; já, hjá yður fundust misgjörðir Ísraels. 14Fyrir því verður þú að segja skilið við Móreset Gat. Húsin í Aksíb reynast Ísraelskonungum svikul. 15Enn læt ég sigurvegarann yfir yður koma, þér íbúar Maresa. Tignarmenni Ísraels munu komast allt til Adúllam. 16Raka hár þitt og skegg vegna þinna ástfólgnu barna, gjör skalla þinn breiðan sem á gammi, því að þau verða að fara hernumin burt frá þér.
Copyright information for Icelandic